Um höfuðlús

Allir geta smitast af höfuðlús en smit er algengast hjá 3-11 ára börnum. Höfuðlúsin er ekki talin bera með sér neina sjúkdóma og hún ber ekki vitni um sóðaskap.

Smitvaldurinn
Höfuðlúsin er 2-3 millimetrar að stærð (svipað og sesamfræ), grá eða ljósbrún á lit. Hún lifir sníkjulífi í mannshári og sýgur blóð úr hársverðinum. Egg höfuðlúsar kallast nit og „límir" hún þau á hár nálægt hársverði þar sem þau klekjast út á 6-10 dögum. Þegar lúsin er 9-12 daga gömul hefur hún náð þroska til að geta hafið eigið varp sem getur orðið allt að tíu egg á dag. Lúsin hefur sérhannaðar klær til að komast um í hárinu og getur skriðið 6-30 sentimetra á mínútu en hvorki stokkið né flogið.

Hlaupabóla

Einkenni hlaupabólu eru meðal annars slappleiki og hiti sem geta komið áður en bólur myndast. Útbrot, sem valda kláða, myndast fyrst á búk og í andliti en berast síðan í hársvörð, handleggi og fætur. Þau geta einnig borist yfir á slímhúðir og kynfæri. Til að byrja með eru útbrotin litlar rauðar bólur sem verða að blöðrum á nokkrum klukkutímum. Blöðrurnar verða síðan að sárum á 1-2 dögum, það myndast hrúður og þær þorna upp. Nýjar blöðrur geta myndast eftir 3-6 daga. Það er mjög mismunandi hversu margar blöðrur hver einstaklingur fær. Börn verða yfirleitt lítið veik á meðan fullorðnir geta orðið mjög veikir.

 

Yfirlit yfir helstu smitsjúkdóma barna

Það er réttur barnsins að vera heima þegar það er veikt, t.d. með hita eða almenna vanlíðan.

Veikt barn getur smitað önnur börn sem kallar á fjarvistir bæði barna og foreldra. Einnig eru líkur á að starfsfólk geti smitast.

Hitalaus = miðað við < 38°C við endaþarmsmælingu eða < 37,5°C við munnmælingu.

Yfirlit yfir helstu smitsjúkdóma barna

 

Sjúkdómur
Meðgöngutími (Tími Frá Smiti Þar Til Einkenni Koma Fram)
Smithætta Frá
Smithætta Þangað Til
Hvenær Má Barnið Mæta Aftur Í Leikskóla/Skóla/Dagforeldris
Augnsýking
1 - 3 dagar
Augað er rautt og umgjörðin bólgin, gröftur í augum og smithætta á meðan
Einum sólarhringi eftir að sýklalyfjameðferð er hafin. (Sjá nánar unfir augnsýkingar)
Gröftur í augum í tengslum við kvef
Í tengslum við kvef
Einstaka gröftur í augnkrók. Mest eftir svefn. Auga ekki rautt eða bólgið. Smitar ekki
Má mæta þrátt fyrir augneinkenni. (Sjá nánar undit augnsýkingar)
Eyrnabólga
 
Staðbundin miðeyrnarbólga er ekki smitandi
Barnið hitalaust og líður vel
Eyrnabólga (vökvi lekur frá eyrum)
Oft fylgikvilli öndunarfærasýkingar
Örsjaldan inniheldur vökvinn bakteríur sem geta smitað.
 
Veltur á því hvort að barnið sé með kvef eða önnur einkenni sem gætu smitað.


Fimmta veikin (parvovirus B19)
1 - 2 vikur
Nokkrum dögum áður en útbrot koma fram
Útbrotin eru komin fram.Getur verið varasöm þunguðum konum, sérstaklega á fyrsta hluta meðgöngu
Barnið hitalaust og líður vel.
Flökkuvörtur
1 vika - 6 mánuðir
Vörtur sjást
Meðferð hafin
Engin takmörk
Frunsa
2 - 12 dagar
Blöðrur myndast
Blöðrur eru þurrkaðar upp
Engin takmörk
Hand-, fót- og munnsjúkdómur
3 - 8 dagar.
Upphafi sjúkdóms.
Útbrot horfin.
Barnið hitalaust og líður vel. Útbrot í rénum.


Hlaupabóla
2 - 3 vikur
Viku eftir smit og nokkrum dögum áður en útbrot koma fram
5 dögum eftir að útbrot koma fram eða ekki koma nýjar bólur í 2 daga og bólur orðnar þurrar
Bólur orðnar þurrar eða eftir 5 - 7 daga
Influenza
1 - 5 dagar
Einum sólarhringi áður en einkenni byrja
Barnið orðið einkenna- og hitalaust
Barnið hitalaust og líður vel
Kossageit
1 - 3 dagar
Vökvi lekur frá sárunum
Sárin orðin þurr og skorpurnar detta af eða eftir sólahring á sýkla-lyfjum
Þegar sárin eru gróin og skorpurnar detta af eða eftir sólahring á sýklalyfjum
Kvef, hálsbólga og veirusýkingar
1 - 7 dagar
Sólahringi áður en einkenni byrja
5 daga eftir uppaf einkenna
Barnið hitalaust og líður vel (sjá nánar í texta undir kvef, hálsbólga og veirusýkingar)
Lús
2 - 8 vikur
Smiti
Þar til meðferð hefst
Þegar meðferð er hafin
Mislingabróðir
(exanthema subitum)


1-2 vikur


Óþekkt


Óþekkt


Barnið hitalaust og líður vel
Niðurgangur og ælupest
Einhverjir dagar
Upphaf niðurgangs eða uppkasta
Ekki lengur niðurgangur eða uppköst
Ekki lengur niðurgangur eða uppköst og barni líður annars vel (sjá nánar undir niðurgangur og ælupest)
Nóroveira
Einhverjir dagar
Upphaf niðurgangs eða uppkasta
2 daga eftir að niðurgangur og uppköst eru hætt.
2 dögum eftir að niðurgangur og uppköst eru hætt og barni líður annars vel (sjá nánar undir niðurgangur og ælupest)
Njálgur
2-6 vikur
2 vikur eftir smit
Meðferð hafin.
Engin takmörk eftir að meðferð hafin
Streptókokka hálsbólga og skarlatsótt
1 - 3 dagar
Frá því barnið smitast
Einum sólahringi eftir að sýklalyfjameðferð er hafin.
Einum sólahringi eftir að sýklalyfjameðferð er hafin og barninu líður annars vel (Sjá nánar í texta undir streptókókkar og hálsbólga)
Sveppasýking í húð
Vikur
Útbrot koma fram
Meðferð hafin. Mjög lítil almenn smithætta
Engin takmörk
Vörtur
2 - 3 mánuðir.
Vörtur koma fram.
Meðferð hafin.
Engin takmörk.