Áherslur í námi við Efstahjalla
Starfið í leikskólanum Efstahjalla er byggt á þremur megin stólpum.
Grunnurinn sem svo heldur stólpunum uppi er samskipti en málörvun er rauður þráður í gegnum allt starf leikskólans.
Fjölmenning: unnið er út frá þeirri hugmynd að við erum öll fjölmenning, lögð er áhersla á heimamenningu og við bjóðum öll tungumál velkomin þó okkar hlutverk sé að vera fyrirmynd í íslensku.
Barnasáttmálinn: Leikskólinn stefnir á að vera Réttindaskóli Unicef. Lögð er sérstök áhersla á hugmyndafræði sáttmálans í öllu starfi skólans.
Sköpun: Sköpun í víðu samhengi er þriðji stólpi leikskólans. Þá er átt við sköpun í leik, myndlist, tónlist, dansi, leiklist og fleira í daglega starfinu.
Skólinn vinnur einnig eftir námsþáttum aðalnámskrá leikskóla og stefnu Kópavogsbæjar.