Börn í Efstahjalla taka þátt í Hamraborg Festival

Opnun sýningarinnar verður í Salnum í Hamraborg föstudaginn 28. ágúst og geta listamennirnir ásamt vinum og vandamönnum komið og skoðað málverkin með Arnari kl. 17 en opinber dagskrá hefst kl. 18 á Listatúni. Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar en við viljum endilega sjá sem allra flesta og auðvitað fagna með listafólkinu okkar.