Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn

Eftir því sem hitatölurnar hækka á hitamælinum verður útivera meira áberandi í daglega starfinu því fátt er eins hollt og gott fyrir okkur öll eins og súrefni og hreyfing. Takk kærlega fyrir veturinn og allar góðu stundirnar sem honum fylgdu.

Um sumardaginn fyrsta (stolið og sílfært af Wikipidea)

Sumardagurinn fyrsti, einnig kallaður Yngismeyjardagur, er fyrsti dagur Hörpu, sem er fyrstur af sex sumarmánuðum í gamla norræna tímatalinu. Sumardaginn fyrsta ber alltaf upp á fimmtudag á tímabilinu frá 19.-25. apríl (það er fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl). Sumardagurinn fyrsti var lengi messudagur eða til 1744.

Íslensk þjóðtrú segir að ef sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar, en með því er átt við að hiti fari niður fyrir frostmark aðfararnótt sumardagsins fyrsta. Í Sögu daganna - hátíðir og merkisdagar (bls. 50, 2. útg., 1977) eftir Árna Björnssonþjóðháttafræðing, segir um sumardaginn fyrsta:

Hvarvetna var fylgst með því, hvort frost væri aðfararnótt sumardagsins fyrsta, þ.e. hvort saman frysti sumar og vetur. Yfirleitt var það talið góðs viti og jafnvel álitið að rjóminn ofan á mjólkurtrogunum yrði jafn þykkur og ísskánin á vatninu þessa nótt. Í því skyni settu menn skál eða skel með vatni út um kvöldið og vitjuðu svo eldsnemma morguns.